Farinn Ion Perelló verður ekki áfram í herbúðum Framara.
Farinn Ion Perelló verður ekki áfram í herbúðum Framara. — Morgunblaðið/Eggert
Spænski knattspyrnumaðurinn Ion Perelló leikur ekki áfram með Fram á næsta tímabili. Perelló gekk til liðs við Fram frá Þór um mitt sumar og skrifaði þá undir samning sem gilti út nýafstaðið tímabil

Spænski knattspyrnumaðurinn Ion Perelló leikur ekki áfram með Fram á næsta tímabili. Perelló gekk til liðs við Fram frá Þór um mitt sumar og skrifaði þá undir samning sem gilti út nýafstaðið tímabil. Fótbolti.net greinir frá því að samningurinn verði ekki endurnýjaður og því muni miðjumaðurinn róa á önnur mið. Perelló, sem er 25 ára gamall, hefur einnig leikið með Hetti/Hugin hér á landi og á alls að baki 38 leiki í efstu fjórum deildunum.