Sendingar Í skýrslu er ýmislegt sagt vanta upp á í póstinnviðum landsins.
Sendingar Í skýrslu er ýmislegt sagt vanta upp á í póstinnviðum landsins. — Morgunblaðið/Eggert
Alþjóðapóstsambandið (UPU) gefur íslenskum póstinnviðum lægstu einkunn meðal Evrópuríkja í skýrslu sinni um póstþróunarstig heimsins árið 2022. Fær Ísland rúm 27 stig af 100 mögulegum í samþættri vísitölu stofnunarinnar sem mælir sérstaklega sendingakerfi með tilliti til alþjóðlegra sendinga

Alþjóðapóstsambandið (UPU) gefur íslenskum póstinnviðum lægstu einkunn meðal Evrópuríkja í skýrslu sinni um póstþróunarstig heimsins árið 2022. Fær Ísland rúm 27 stig af 100 mögulegum í samþættri vísitölu stofnunarinnar sem mælir sérstaklega sendingakerfi með tilliti til alþjóðlegra sendinga. Næst fyrir ofan Ísland í Evrópu eru Albanía, Norður-Makedónía og Lúxemborg, en skýrslan nær til 172 ríkja.

Niðurstöðum er skipt í tíu flokka og ná fimm ríki í efsta flokk, það eru Sviss, Austurríki, Þýskaland, Japan og Frakkland. Ísland er í fjórða flokki.

Vísitalan byggir á fjórum þáttum og fær Ísland fæstu stigin í áreiðanleika og tengingu við umheiminn. Ísland lendir í 123. sæti hvað varðar þessa þætti. » 24