— Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Ferðafélag barnanna stóð fyrir hrekkjavökusmiðju og draugagöngu í Heiðmörk síðdegis í gær. Krökkunum stóð til boða að búa til hryllilegt hrekkjavökuskraut í draugasal og svo var haldið í draugagöngu

Ferðafélag barnanna stóð fyrir hrekkjavökusmiðju og draugagöngu í Heiðmörk síðdegis í gær. Krökkunum stóð til boða að búa til hryllilegt hrekkjavökuskraut í draugasal og svo var haldið í draugagöngu. Henni lauk við varðeld í Rjóðrinu. Hrekkjavökuna ber upp á þriðjudag í næstu viku, 31. október, og má búast við að þann dag verði margar óhrjálegar verur á ferðinni í leit að einhverju góðgæti.