Gunnhildur vinnur að einu verkanna.
Gunnhildur vinnur að einu verkanna.
Myndlistarsýning Gunnhildar Þórðardóttur Stiklur verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur í dag, 26. október, og stendur hún til 12. nóvember. Þar verða til sýnis ný verk, bæði tví- og þrívíð, auk eldri verka

Myndlistarsýning Gunnhildar Þórðardóttur Stiklur verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur í dag, 26. október, og stendur hún til 12. nóvember. Þar verða til sýnis ný verk, bæði tví- og þrívíð, auk eldri verka. „Á sýningunni eru verk sem sýna eins konar stiklur eða brot eða búta af íslenskri náttúru auk þess sem stiklað er á stóru varðandi túlkun listamannsins á stóriðju og afleiðingum hennar á íslenska náttúru og upplifun,“ segir í tilkynningu. Ný ljóðabók listamannsins Dóttir drápunnar – ljóð úr djúpinu verður fáanleg á sýningunni og mun listamaðurinn lesa ljóð fyrir sýningargesti.

„Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hnattræn hlýnun og hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr brotum, bútum eða afskurði úr ýmsum efniviði, t.d. timbri, eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk.“