Tríó Leifur Gunnarsson, Sunna Gunnlaugsdóttir og Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Tríó Leifur Gunnarsson, Sunna Gunnlaugsdóttir og Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Nú þegar hrekkjavakan nálgast með öllum sínum ævintýrum er ekki úr vegi að skella sér á tónleikadagskrá sem heitir Jazzhrekkur og er hugsuð fyrir alla fjölskylduna. Þar verða reiddir fram djasstónar byggðir á þjóðtrú um að á tímamótum verði skilin milli mannheims og heims hins yfirnáttúrulega óljós

Nú þegar hrekkjavakan nálgast með öllum sínum ævintýrum er ekki úr vegi að skella sér á tónleikadagskrá sem heitir Jazzhrekkur og er hugsuð fyrir alla fjölskylduna. Þar verða reiddir fram djasstónar byggðir á þjóðtrú um að á tímamótum verði skilin milli mannheims og heims hins yfirnáttúrulega óljós. Álfar, huldufólk og uppvakningar birtast. Dagskráin hentar vel fyrir börn á aldrinum 5-9 ára. Söngkonan Ingibjörg Fríða Helgadóttir, píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson ætla að fræða börnin um djasstónlist en gæta þess þó að hræða þau ekki of mikið. Tónlistin er samin af Leifi Gunnarssyni og mega tónleikagestir búast við fjörugum og fræðandi tónleikum þar sem boðið verður upp á virka þátttöku í gegnum söng, klapp og dans. Hrekkjavökutónleikar verða á þremur söfnum Borgarbókasafns, á morgun, föstudag, í Úlfarsárdal kl. 10-11 og bókasafninu í Grófinni kl. 13-14 og á laugardag 28. okt. kl. 13-14 í Borgarbókasafni Gerðubergi.

Aðgangur er frír og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.