Ævar Örn Jóspesson, útvarpsmaður og rithöfundur, er einnig krossgátuhöfundur en hann hefur árum saman samið vísbendingakrossgátur. Segir í tilkynningu að sjálfur lýsi hann gátum sínum sem svínslega erfiðum og að hann gefi oft afar langsóttar og snúnar vísbendingar

Ævar Örn Jóspesson, útvarpsmaður og rithöfundur, er einnig krossgátuhöfundur en hann hefur árum saman samið vísbendingakrossgátur. Segir í tilkynningu að sjálfur lýsi hann gátum sínum sem svínslega erfiðum og að hann gefi oft afar langsóttar og snúnar vísbendingar. Ævar Örn mun spjalla um krossgátugerð sína og reyna að útskýra hvernig hann hugsar þegar hann sest við smíðarnar á Fræðakaffi á Borgarbókasafninu í Spönginni í dag klukkan 16:30.