Nokkrum sinnum hefur maður tekið djúpt í árinni hér í Málinu. Orðtakið þýðir að fullyrða mikið, eins og maður gerir um ríkisstjórnina eða matinn í vinnunni. Að taka djúpt í „árina“ er tilgangs- og merkingarlaust, það á að dýfa árinni…

Nokkrum sinnum hefur maður tekið djúpt í árinni hér í Málinu. Orðtakið þýðir að fullyrða mikið, eins og maður gerir um ríkisstjórnina eða matinn í vinnunni. Að taka djúpt í „árina“ er tilgangs- og merkingarlaust, það á að dýfa árinni djúpt í sjóinn, hugsa sér að með vanti og maður taki djúpt í vatnið með henni.