Knattspyrnuþjálfarinn Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Damaiense, sem leikur í efstu deild í Portúgal. Fótbolti.net greinir frá því að Þorlákur hafi tekið við stjórnartaumunum hjá liðinu í síðustu viku og stýri sínum fyrsta leik í 1
Knattspyrnuþjálfarinn Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Damaiense, sem leikur í efstu deild í Portúgal. Fótbolti.net greinir frá því að Þorlákur hafi tekið við stjórnartaumunum hjá liðinu í síðustu viku og stýri sínum fyrsta leik í 1. deildinni 11. nóvember næstkomandi. Damaiense er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með fjóra sigra og eitt tap í fyrstu fimm leikjunum en Benfica er á toppnum með fullt hús stiga.