Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú og hefur þeim fjölgað um 35% á síðustu fimm árum. Á heimasíðu Golfsambands Íslands er greint frá því að þann 1. júlí á þessu ári hafi félagsmenn sem voru skráðir í golfklúbba á landinu verið alls 24.201

Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú og hefur þeim fjölgað um 35% á síðustu fimm árum. Á heimasíðu Golfsambands Íslands er greint frá því að þann 1. júlí á þessu ári hafi félagsmenn sem voru skráðir í golfklúbba á landinu verið alls 24.201. Kylfingum hefur

þar með fjölgað um tæplega þúsund frá síðasta ári og er þetta um leið í fyrsta skipti sem fjöldi félagsmanna á Íslandi fer yfir 24.000 manns. Kylfingum hefur fjölgað um tæplega 6.400 á undanförnum fimm árum, sem er 35% aukning.