Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok nóvember. Íslandi mistókst að tryggja sér þátttökurétt í gegnum undankeppnina, en fékk síðan úthlutað boðssæti og verður með …

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok nóvember. Íslandi mistókst að tryggja sér þátttökurétt í gegnum undankeppnina, en fékk síðan úthlutað boðssæti og verður með á stórmóti í fjórða sinn og í fyrsta sinn frá árinu 2012. Flestir leikmenn hópsins, sex talsins, leika með Val og eru aðrir sex leikmenn atvinnumenn erlendis. » 74