Mengun Náttúruverndarsamtök Íslands leggja til að öllum skipum verði meinað að hafa svartolíu um borð séu þau innan 12 mílna frá landi.
Mengun Náttúruverndarsamtök Íslands leggja til að öllum skipum verði meinað að hafa svartolíu um borð séu þau innan 12 mílna frá landi. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Náttúruverndarsamtök Íslands leggja til að íslensk stjórnvöld banni notkun og flutning á svartolíu innan landhelgi Íslands, sem mun útiloka skip með svartolíu um borð frá því að koma nær landinu en 12 mílur

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Náttúruverndarsamtök Íslands leggja til að íslensk stjórnvöld banni notkun og flutning á svartolíu innan landhelgi Íslands, sem mun útiloka skip með svartolíu um borð frá því að koma nær landinu en 12 mílur. Þetta telja samtökin vera sterk skilaboð um áherslur íslenskra yfirvalda í baráttunni gegn loftslagsvánni og fyrir bættri umgengni við umhverfið.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi Náttúruverndarsamtakanna til sjö þingmanna sem sitja þing Norðurlandaráðs í Osló, en þinghald hófst á mánudag og lýkur í dag. Fundahald fer fram undir fyrirsögninni „Örugg, græn og ung Norðurlönd“.

Í bréfinu eru þingmennirnir hvattir til að fylgja eftir tillögum norrænna umhverfisráðherra um grænar siglingaleiðir í samvinnu við önnur ríki á Norðurlöndum, Evrópusambandið og ríki á norðurslóðum. Samtökin segja þetta úrræði „áhrifaríkustu aðgerð gegn bráðnun íss og jökla norðurslóða“.

Krefjast aðgerða

„Ekki þarf að tíunda það hér að hlýnunarmáttur sótagna (e. black carbon) sem losna við bruna á svartolíu er 680 × meiri en losun af sama magni koltvísýrings yfir 100 ára tímabil og hefur 2.200 × meiri hlýnunarmátt yfir 20 ára tímabil. Því er ljóst að bann við svartolíu gæti gefið lífsnauðsynlegt andrými til að takast á við loftslagsvána, sem brátt kann að reynast óviðráðanleg ef ekki er gripið til raunhæfra aðgerða.“

Jafnframt vekja samtökin athygli á tíðum yfirlýsingum norrænna yfirvalda um mikilvægi þess að draga úr losun mengandi efna frá skipaumferð. „Fylgja verður eftir viljayfirlýsingum með aðgerðum.“