Bakvörður Kristinn Jónsson hefur yfirgefið KR-inga eftir sex góð ár.
Bakvörður Kristinn Jónsson hefur yfirgefið KR-inga eftir sex góð ár. — Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnumaðurinn Kristinn Jónsson hefur yfirgefið herbúðir KR eftir sex ár hjá félaginu. Hinn 33 ára gamli Kristinn, sem er bakvörður, tilkynnti tíðindin á samfélagsmiðlinum Instagram. Kristinn er uppalinn hjá Breiðabliki en hélt út í…

Knattspyrnumaðurinn Kristinn Jónsson hefur yfirgefið herbúðir KR eftir sex ár hjá félaginu. Hinn 33 ára gamli Kristinn, sem er bakvörður, tilkynnti tíðindin á samfélagsmiðlinum Instagram. Kristinn er uppalinn hjá Breiðabliki en hélt út í atvinnumennsku árið 2015 og lék með Brommapojkarna í Svíþjóð og Sarpsborg og Sogndal í Noregi. Hann samdi við Breiðablik árið 2017, en skipti yfir til KR árið eftir. Hann á að baki 268 leiki í efstu deild.