Sædís Rún Heiðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Stjörnunnar, æfir um þessar mundir með stórliði Chelsea á Englandi. Bakvörðurinn, sem er 19 ára gamall, mun æfa með Englandsmeisturunum næstu daga en liðið er ríkjandi Englandsmeistari
Sædís Rún Heiðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Stjörnunnar, æfir um þessar mundir með stórliði Chelsea á Englandi.
Bakvörðurinn, sem er 19 ára gamall, mun æfa með Englandsmeisturunum næstu daga en liðið er ríkjandi Englandsmeistari. Hún hefur verið lykilmaður í liði Garðbæinga undanfarin ár og á að baki 71 leik fyrir Stjörnuna í efstu deild. Þá á hún að baki þrjá A-landsleiki fyrir Ísland.