Norður
♠ ÁD4
♥ ÁK4
♦ Á654
♣ D65
Vestur
♠ 2
♥ DG1063
♦ D103
♣ 10872
Austur
♠ K1083
♥ 985
♦ G982
♣ 93
Suður
♠ G9765
♥ 72
♦ K7
♣ ÁKG4
Suður spilar 6♠.
„Spilarar eru alltaf að tala um fyrirframlíkur á skiptingu. Jú-jú. Það er gott að þekkja þær. En það er mun mikilvægara að þekkja andstæðingana. Svo dæmi sé tekið: Hverjar eru fyrirframlíkur á því að austur sé einföld og heiðarleg sál?“ Gölturinn teiknaði í snarheitum upp hendur N-S og sýndi fuglunum: 6♠ með hjartadrottningu út. „Þið drepið, farið heim á lauf og spilið spaða á drottninguna. Og austur fylgir með ÁTTU.“
Óskar velti uglulega höfðinu til og frá: „Líklegast er að áttan sé blönk eða þvingað spil frá tíu-áttu. Í báðum tilfellum er best að fara heim til að spila spaðagosa.“
Gölturinn skrifaði inn hendur A-V: „Já. Ef þú þekkir ekki andstæðinginn eru 99% líkur á að þannig sé í pottinn búið. En ef þú vissir að ÉG var með spil austurs – hefði málið þá ekki horft öðruvísi við?“