Hádegisverðarsalur Árvakurs í Hádegismóum var þéttsetinn í gærmorgun þegar 110 ára afmæli Morgunblaðsins var fagnað með glæsibrag. Starfsfólk og stjórnarfólk kom saman til að halda upp á þennan áfanga og var veglegur morgunverður í boði
Hádegisverðarsalur Árvakurs í Hádegismóum var þéttsetinn í gærmorgun þegar 110 ára afmæli Morgunblaðsins var fagnað með glæsibrag. Starfsfólk og stjórnarfólk kom saman til að halda upp á þennan áfanga og var veglegur morgunverður í boði. Davíð Oddsson ritstjóri hóf veisluna með ávarpi, áður en Stefán Einar Stefánsson þáttarstjórnandi Dagmála ræddi við Harald Johannessen, ritstjóra og framkvæmdastjóra, og Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Árvakurs. » 6