Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut snemma í gærmorgun, 2. nóvember. Slysið átti sér stað skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ. Segir frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut snemma í gærmorgun, 2. nóvember. Slysið átti sér stað skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ. Segir frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Ekki var í gær búið að greina frá nafni hins látna.

Neyðarlínu barst tilkynning um slysið kl. 08.16 og fóru lögregla og slökkvilið þegar á vettvang. Ökutæki hins látna hafði þá oltið. Tildrög slyssins eru í rannsókn.