60 ára Dragi er frá Skopje í Makedóníu en fluttist til Íslands í lok síðustu aldar og býr í Garðabæ. Hann var atvinnumaður í fótbolta í Júgóslavíu og Frakklandi og hefur verið knattspyrnuþjálfari á Íslandi. Hann þjálfar núna 2. og 4. flokk hjá ÍR. Hann hefur einnig verið starfsmaður í Álftanesskóla síðustu 15 ár. Dragi hefur einstakan áhuga á íslenskum frímerkjum og hefur safnað þeim í langan tíma.
Fjölskylda Eiginkona Dragi er Suzana Pavlova, f. 1964, verslunarstjóri í gleraugnabúðinni Eyesland. Hún er einnig túlkur. Börn þeirra eru Marko, f. 1988, starfar sem móttökustjóri á hóteli í Kaupmannahöfn, og Marta, f. 1994, starfar sem sérfræðingur í mannauði hjá Símanum. Dóttir Mörtu er Emma, f. 2022.