María Konráðsdóttir sópransöngkona og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari koma fram á tónleikum í Salnum á morgun, sunnudag, kl. 13.30 sem eru hluti af tónleikaröðinni Klassík í Salnum. Samkvæmt viðburðarkynningu er rómantíkin þema tónleikanna
María Konráðsdóttir sópransöngkona og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari koma fram á tónleikum í Salnum á morgun, sunnudag, kl. 13.30 sem eru hluti af tónleikaröðinni Klassík í Salnum. Samkvæmt viðburðarkynningu er rómantíkin þema tónleikanna. „Bæði í tónlistarsögulegum skilningi en einnig í viðfangsefni ljóðanna.“ Miðar fást á tix.is og salurinn.is.