Juno Temple er nýja söguhetjan.
Juno Temple er nýja söguhetjan. — AFP/Allen Berezovsky
Fortíð Í nýjustu seríunni af glæpaþáttunum Fargo leikur Juno Temple Dot Lyon, ósköp venjulega eiginkonu og móður í úthverfi í Minnesota. Eða hvað? Þegar tilraun er gerð til að ræna henni bregst hún af fimi til varnar sem bendir til þess að hún eigi sér skuggalegri fortíð

Fortíð Í nýjustu seríunni af glæpaþáttunum Fargo leikur Juno Temple Dot Lyon, ósköp venjulega eiginkonu og móður í úthverfi í Minnesota. Eða hvað? Þegar tilraun er gerð til að ræna henni bregst hún af fimi til varnar sem bendir til þess að hún eigi sér skuggalegri fortíð. Ný saga er sem fyrr sögð í hverri þáttaröð. Jon Hamm leikur lögreglustjórann í bænum sem er uppfullur af fortíðarþrá og fordómum, Jennifer Jason Leigh fer með hlutverk geðvondrar tengdamóður Dot og Joe Keery úr Stranger Things kemur einnig við sögu. Fargo má nálgast á efnisveitunni Hulu frá og með 21. nóvember.