Mick gamli Mars hress að vanda.
Mick gamli Mars hress að vanda. — AFP/Kevin Winter
Mars Mick Mars, sem lét af störfum sem gítarleikari glysbandsins Mötley Crüe fyrr á þessu ári, hefur sent frá sér fyrstu smáskífuna af væntanlegri breiðskífu

Mars Mick Mars, sem lét af störfum sem gítarleikari glysbandsins Mötley Crüe fyrr á þessu ári, hefur sent frá sér fyrstu smáskífuna af væntanlegri breiðskífu. Loyal To the Lie kallast lagið en platan ber það fróma nafn The Other Side Of Mars. „Mig langaði að gera eitthvað stórt og grimmt,“ hefur rokkvefurinn Blabbermouth eftir Mars. „Fólk mun heyra minn tón – mitt sánd. Ég er eins og ég er og enginn getur leikið það eftir.“