Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þing aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hefst í lok þessa mánaðar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hið 28. í röðinni og gengur undir nafninu COP28. Ríkisstjórn Íslands hefur sett sér það markmið að ná svokölluðu kolefnishlutleysi…

Þing aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hefst í lok þessa mánaðar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hið 28. í röðinni og gengur undir nafninu COP28. Ríkisstjórn Íslands hefur sett sér það markmið að ná svokölluðu kolefnishlutleysi árið 2040 og 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda ef miðað er við 1990 eigi síðar en árið 2030. Við höfum liðlega sex ár til að ná því verðuga markmiði en staðan er ekki góð. Útblástur gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá samgöngum og atvinnustarfsemi hér á landi hefur aukist jafnt og þétt á liðnum áratugum – með örlitlu sloti í heimsfaraldrinum – og markmiðin ekki í sjónmáli.

Á fræðsluvefnum Himinn og haf sem Birna Hallsdóttir starfrækir má finna gagnlegar upplýsingar um þróun losunar frá Íslandi. Þar kemur skýrt fram að hún hefur ekki einungis aukist meira en í löndunum í kringum okkur frá 1990 heldur er losun á hvern íbúa hérlendis einnig meiri en í nágrannalöndunum. Ísland er með 7. mestu losun af OECD-löndunum 37 og reyndar þá mestu ef losun vegna landnotkunar er meðtalin.

Stóriðjan hér á landi nýtur þess að vera innan viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) og því er öll önnur losun á beina ábyrgð stjórnvalda. Líkt og núverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þreytist ekki á að nefna þá stendur Ísland vel að vígi í samanburði við önnur lönd. Við búum að því að eiga hitaveitu og framleiða rafmagn með endurnýjanlegum orkugjöfum. Stærstu verkefni okkar í dag eru að draga rækilega úr losun GHL frá bílaumferð, efla almenningssamgöngur, standa við markmið okkar í úrgangsmálum, draga úr losun vegna landnotkunar og setja mengandi atvinnustarfsemi skilyrði um notkun bestu fáanlegu tækni í iðnaðarferlum. Síðan bíða stór verkefni í orkuskiptum á sjó og í lofti en hin þarf að leysa fyrst.

Allt hefur þetta legið fyrir árum saman en ekkert í aðgerðaáætlunum stjórnvalda tryggir að árangurinn náist á tilsettum tíma. Aðgerðaáætlun um samdrátt í losun GHL frá 2020 hefur enn ekki verið uppfærð og fátt er að frétta af nauðsynlegum laga- eða reglugerðarbreytingum sem skapa eiga hvata til samdráttar í losun.

Á COP28 verður í fyrsta skipti kallað eftir stöðumati frá hverju einasta aðildarríki (e. global stock take). Því er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar ríki eru stödd í aðgerðum sínum í loftslagsmálum með tilliti til ákvæða Parísarsamningsins. Á vef loftslagsráðs segir að COP28 eigi að ljúka með birtingu niðurstaðna úr stöðumatinu á heimsvísu. Loftslagsráð hefur réttilega lýst loftslagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem óljósum og ófullnægjandi. Stöðumatið hefur enn ekki verið birt en þegar ríkisstjórn Íslands skilar því inn kemur á daginn hvar Ísland stendur og hversu langt er í land.

Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar og fv. umhverfisráðherra. thorunn.sveinbjarnardottir@althingi.is

Höf.: Þórunn Sveinbjarnardóttir