Enn verður bið á því að spænski knattspyrnumaðurinn Thiago Alcantara geti spilað fyrir enska liðið Liverpool á nýjan leik. Thiago hefur verið meiddur frá því í apríl á þessu ári þegar hann gekkst undir skurðaðgerð á mjöðm
Enn verður bið á því að spænski knattspyrnumaðurinn Thiago Alcantara geti spilað fyrir enska liðið Liverpool á nýjan leik. Thiago hefur verið meiddur frá því í apríl á þessu ári þegar hann gekkst undir skurðaðgerð á mjöðm. Undanfarið hefur bakslag komið í bata miðjumannsins og það oftar en einu sinni. Hefur hann því ekkert spilað á tímabilinu. Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool sagðist á blaðamannafundi í gær ekki reikna með því að Thiago yrði klár í slaginn að nýju fyrr en í byrjun næsta árs.