Farin Anna Soffía Lárusdóttir hefur sagt upp samningi sínum.
Farin Anna Soffía Lárusdóttir hefur sagt upp samningi sínum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Körfuknattleikskonan Anna Soffía Lárusdóttir hefur sagt upp samningi sínum við Breiðablik og mun því ekki leika áfram með liðinu á leiktíðinni. Anna er uppalin hjá Snæfelli en kom til Breiðabliks fyrir tveimur árum

Körfuknattleikskonan Anna Soffía Lárusdóttir hefur sagt upp samningi sínum við Breiðablik og mun því ekki leika áfram með liðinu á leiktíðinni. Anna er uppalin hjá Snæfelli en kom til Breiðabliks fyrir tveimur árum.

Hefur hún verið einn besti leikmaður liðsins síðan. Breiðablik hefur tapað öllum leikjum sínum í úrvalsdeildinni til þessa á leiktíðinni og vann aðeins fjóra leiki á síðustu leiktíð.