Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir neyðarástand ríkja í landbúnaði. Nautakjötsskortur er yfirvofandi og stórfelld fækkun á slátruðum lömbum í haust er staðreynd. Vigdís Häsler er gestur Dagmála í dag og fer þar um víðan völl varðandi þá stöðu sem upp er komin í íslenskum landbúnaði.