Leikkonan Gwyneth Paltrow er enn og aftur á milli tannanna á fólki. Í þetta sinn er það vegna meðhöndlunar hennar á óskarsstyttunni frægu sem hún hlaut árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Shakespeare in Love“

Leikkonan Gwyneth Paltrow er enn og aftur á milli tannanna á fólki. Í þetta sinn er það vegna meðhöndlunar hennar á óskarsstyttunni frægu sem hún hlaut árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Shakespeare in Love“. Hún svaraði 73 spurningum fyrir tímaritið Vogue en það er gert á þann hátt að myndavél eltir hana um heimili hennar á meðan hún er spurð 73 spurninga. Í myndbandinu gengur hún inn um hlið í garðinum sínum og má sjá óskarsverðlaunastyttuna notaða sem hurðastoppara. Lestu meira á K100.is.