Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir verður starfandi formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Borghildur er í Björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupstað og Ársæli í Reykjavík og hefur setið í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá árinu 2019, þar af sem varaformaður síðastliðin þrjú ár.
Haft er eftir Borghildi í tilkynningu að í ljósi aðstæðna síðustu daga sé sú ákvörðun Otta Rafns Sigmarssonar að stíga tímabundið til hliðar sem formaður virðingarverð og skiljanleg enda þurfi hann rými til að sinna sinni fjölskyldu og nærumhverfi. Otti, sem býr í Grindavík, sagðist í yfirlýsingu í gær vilja einbeita sér að fjölskyldu sinni og þeim verkefnum sem blöstu við Grindvíkingum á næstu dögum.
„Mér er ljúft og skylt að taka við þessum bolta, enda margir þræðir hjá félaginu og mikilvægt að halda fókus. Stjórn félagsins er öflug og munum við vinna að þessu verkefni, sem og öðrum, saman sem ein heild líkt og endranær, ásamt einvala liði björgunarsveitarfólks og starfsfólks,“ er haft eftir Borghildi í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.