„Inescapable Presence“ er yfirskrift fyrirlestrar sem bandaríska myndlistarkonan Heather Sincavage heldur í röðinni Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 17. „Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um gjörningalist…

„Inescapable Presence“ er yfirskrift fyrirlestrar sem bandaríska myndlistarkonan Heather Sincavage heldur í röðinni Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 17. „Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um gjörningalist sína og það sem hún hefur í huga við sköpun nýrra verka: látbragð, líkamleika og endurtekningu, vinnuafl og vinnu kvenna,“ segir í viðburðarkynningu. Þar kemur fram að fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis. Sincavage lauk BFA-gráðu frá Tyler School of Art, Temple University í Philadelphia og MFA-gráðu frá School of Art, University of Washington í Seattle. Hún starfar um þessar mundir sem aðstoðarprófessor og framkvæmdastjóri Sordoni-listagallerísins í Wilkes-háskóla í Pennsylvaníu. Verk hennar hafa verið sýnd víða í Evrópu og N-Ameríku, t.d. í Tate Modern.