— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það voru kátir nemendur í Hagaskóla sem fögnuðu þegar lokakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, var haldið í Borgarleikhúsinu í gær. Siguratriðið hét „Líttu upp, taktu eftir“ og fjallaði um símafíkn

Það voru kátir nemendur í Hagaskóla sem fögnuðu þegar lokakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, var haldið í Borgarleikhúsinu í gær. Siguratriðið hét „Líttu upp, taktu eftir“ og fjallaði um símafíkn.

Háteigsskóli hafnaði í öðru sæti og Seljaskóli í því þriðja, en Langholtsskóli hlaut Skrekkstunguverðlaunin fyrir skapandi notkun á íslensku í atriði sínu.