Haraldur Franklín Magnús náði sér ekki á strik á lokahringnum á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í Tarragona á Spáni í gær. Fyrir vikið er draumurinn um þátttökurétt á mótaröðinni úr sögunni
Haraldur Franklín Magnús náði sér ekki á strik á lokahringnum á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í Tarragona á Spáni í gær. Fyrir vikið er draumurinn um þátttökurétt á mótaröðinni úr sögunni.
Haraldur lék hringinn í gær á 77 höggum, sex höggum yfir pari, og lýkur leik í 77. sæti á pari eftir sex hringi. Efstu 25 kylfingarnir tryggðu sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni, sem er sú sterkasta í Evrópu.