Úlfaldi Eyrnalokkur sem Sigríður Elfa Sigurðardóttir hannaði undir merkjum SES design.
Úlfaldi Eyrnalokkur sem Sigríður Elfa Sigurðardóttir hannaði undir merkjum SES design.
Handverk og hönnun nefnist sýning á handverki, hönnun og listiðnaði sem haldin verður í 21. sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Sýningin er opin í dag, fimmtudag, milli kl

Handverk og hönnun nefnist sýning á handverki, hönnun og listiðnaði sem haldin verður í 21. sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Sýningin er opin í dag, fimmtudag, milli kl. 16 og 19 og frá föstudeginum 17. nóvember til mánudagsins 20. nóvember milli kl. 12 og 18, en aðgangur er ókeypis.

„Þessi sýning hefur verið gríðarlega vinsæl frá upphafi en hún var fyrst haldin árið 2006 og dregur alltaf að sér þúsundir gesta. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem eru á staðnum og kynna vörur sínar á sýningunni. Þátttakendur eru víðsvegar að af landinu. Fjölbreytnin ræður ríkjum á sýningunni og greinilegt að gróskan er mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði,“ segir í viðburðarkynningu. Hægt er að skoða myndir af verkum frá öllum þátttakendum á vefnum handverkoghonnun.is.