Stefán Eiríksson
Stefán Eiríksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ekki er nóg með umbrotin í Grindavík og rýmingu bæjarins að fyrirskipan hins opinbera, heldur bætast við innbrot, einnig að undirlagi hins opinbera.

Ekki er nóg með umbrotin í Grindavík og rýmingu bæjarins að fyrirskipan hins opinbera, heldur bætast við innbrot, einnig að undirlagi hins opinbera.

Upp komst um strákinn Tuma, ljósmyndara Ríkisútvarpsins (Rúv.), sem öryggismyndavél sýndi reyna að komast inn í mannlaust hús, róta eftir lyklum og fikta við útidyrahurðina. Eftir að hafa farið í heimildarleysi inn á bannsvæði og fljúga dróna vítt og breitt án leyfis.

Hvað gekk ljósmyndaranum til? Hélt hann að Páll Steingrímsson skipstjóri ætti heima þarna?!

Margir hafa með réttu hneykslast á framferði ljósmyndarans, en þeir ættu að hafa hugfast að svívirðan við stuldinn á síma kapteinsins og innbrotið í hann var hálfu alvarlegra vegna þess að þar var brotið fullframið.

Yfirlýsing Heiðars Arnar Sigurfinnssonar fréttastjóra Rúv. gerði málið ekki minna furðulegt, en hann bar við „misskilningi og óðagoti“, án þess að játa ábyrgð sína eða ætla nokkrum ábyrgð.

Eru einhver skilyrði í starfsmannastefnu fréttastofu Rúv.? Þar virðast byrlun, skattsvik, ástvinahygli, viðtaka þýfis, dreifing einkagagna og nú innbrot a.m.k. engin fyrirstaða. Líður Stefáni Eiríkssyni, útvarpsstjóra og fv. lögreglustjóra, bara vel með það?