Svíþjóð Þórdís Elva Ágústsdóttir er komin til Svíþjóðar frá Val.
Svíþjóð Þórdís Elva Ágústsdóttir er komin til Svíþjóðar frá Val. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrnukonan Þórdís Elva Ágústsdóttir gerði í gær tveggja ára samning við sænska félagið Växjö. Hún kemur til félagsins frá Val, þar sem hún hefur leikið síðustu tvö ár. Þórdís er uppalin hjá Haukum, en hefur einnig leikið með Fylki

Knattspyrnukonan Þórdís Elva Ágústsdóttir gerði í gær tveggja ára samning við sænska félagið Växjö. Hún kemur til félagsins frá Val, þar sem hún hefur leikið síðustu tvö ár. Þórdís er uppalin hjá Haukum, en hefur einnig leikið með Fylki. Hefur hún síðan átt sinn þátt í tveimur Íslandsmeistaratitlum Vals í röð. Alls hefur hún leikið 105 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 13 mörk. Växjö hafnaði í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á nýliðinni leiktíð.