Framkvæmdir Stórvirkar vinnuvélar eru að störfum við Svartsengi þar sem varnargarðar skulu rísa.
Framkvæmdir Stórvirkar vinnuvélar eru að störfum við Svartsengi þar sem varnargarðar skulu rísa. — Morgunblaðið/Eyþór
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Auðvitað vill maður alltaf að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig þegar maður er í keppni við eitthvað en við vinnum allan sólarhringinn og þessu miðar áfram,“ segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís. Arnar Smári er einn fulltrúa Verkís við gerð varnargarða til að verja innviði á Reykjanesskaga.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Auðvitað vill maður alltaf að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig þegar maður er í keppni við eitthvað en við vinnum allan sólarhringinn og þessu miðar áfram,“ segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís. Arnar Smári er einn fulltrúa Verkís við gerð varnargarða til að verja innviði á Reykjanesskaga.

Vinna stendur nú yfir við tvo varnargarða. Annars vegar við fjögurra kílómetra bogadreginn garð í kringum orkuverið í Svartsengi og Bláa lónið en hins vegar eins og hálfs kílómetra langan garð ofan við Hagafell og Sýlingarfell, nær Sundhnúkum.

Stærsta jarðýta á landinu

„Þetta eru fyrstu áfangarnir sem við leggjum áherslu á,“ segir Arnar Smári en auk þess hafa verið hannaðir varnargarðar fyrir Grindavíkurbæ. Í fyrstu verða garðarnir um þriggja metra háir og svo verður metið hvort þurfi að hækka þá. Segir Arnar Smári að fyrst og fremst sé horft til þess að byrja að koma upp garði þar sem hættan á hraunrennsli sé hvað mest.

Arnar Smári segir að í vikunni hafi verið sniðnir ýmsir vankantar af framkvæmdinni og vélum hafi verið bætt við þegar þörfin hafi verið metin. „Við fengum þessa stóru ýtu og svo er önnur stór beltagrafa væntanleg seinnipartinn,“ sagði hann síðdegis í gær. Umrædd jarðýta, Caterpillar D11, er raunar engin smásmíði, 104 tonn að þyngd og sú stærsta á landinu.

Vel á fimmta tug stórvirkra vinnuvéla er á svæðinu. Þar af eru um 25-30 treilerar, fjórar stórar ýtur og þrjár minni, 4-5 stórar beltagröfur og tveir valtarar að sögn Arnars Smára. „Ég held svo að hér séu um 35-40 manns að störfum hverju sinni en það fækkar reyndar aðeins á nóttunni.“

Fara varlega á nóttunni

Ari Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Verkís, segir að vissulega séu aðstæður þarna krefjandi en starfsmenn fari að öllu með gát. „Það er auðvitað ekkert þægilegt að vinna í myrkri en menn eru með góð ljós og fara varlega.“

Hann segir að erfitt sé að fullyrða hvenær lokið verði við að reisa varnargarðana. Framvindan verði að ráðast af ástæðum og þróun mála. „Við höfum talað um að horfa á 30-40 daga þar til þetta verður fullbyggt en það eru auðvitað margir óvissuþættir í því varðandi rýmingu.“

Efni er sótt í námur við Stapafell en einnig er notast við efni á staðnum sem ýtt er upp með stórum jarðýtum. Tveir fulltrúar frá Verkís eru á staðnum hverju sinni og tveir fulltrúar frá Eflu. Ýmsir verktakar koma að vinnunni en verkstjórar frá Íslenskum aðalverktökum og Ístaki stýra mannskap og búnaði að sögn Arnars Smára.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon