— Morgunblaðið/Eggert
Varðskipið Freyja sést hér lóna skammt utan við Grindavík í gærkvöldi, þar sem ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að taka drónamyndir af helstu afleiðingum jarðhræringanna sem gengið hafa yfir Reykjanesskaga síðustu daga

Varðskipið Freyja sést hér lóna skammt utan við Grindavík í gærkvöldi, þar sem ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að taka drónamyndir af helstu afleiðingum jarðhræringanna sem gengið hafa yfir Reykjanesskaga síðustu daga. Vika er nú liðin frá jarðskjálftahrinunni miklu sem leiddi til rýmingar bæjarins.

Fengu íbúar að snúa aftur til heimila sinna til að bjarga verðmætum í gær, þriðja daginn í röð, og vonast er til þess að aðstæður leyfi að það verði gert aftur í dag.