Bakvörður Damier Pitts skoraði 22 stig að meðaltali á síðustu leiktíð.
Bakvörður Damier Pitts skoraði 22 stig að meðaltali á síðustu leiktíð. — Morgunblaðið/Eggert
Körfuknattleiksdeild Hauka hefur komist að samkomulagi við Bandaríkjamanninn Damier Pitts um að hann leiki með liðinu út tímabilið. Pitts, sem er 33 ára gamall bakvörður, lék með Grindavík á síðasta tímabili og stóð sig vel

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur komist að samkomulagi við Bandaríkjamanninn Damier Pitts um að hann leiki með liðinu út tímabilið. Pitts, sem er 33 ára gamall bakvörður, lék með Grindavík á síðasta tímabili og stóð sig vel. Skoraði hann 22 stig, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Grindvíkinga.

Þá hafði Pitts auk þess áður leikið hér á landi, með liði KFÍ tímabilið 2012-13.