Norður
♠ ÁG95
♥ ÁKD8
♦ DG2
♣ 102
Vestur
♠ 432
♥ 542
♦ 1097
♣ G852
Austur
♠ K87
♥ 976
♦ 86
♣ ÁKD94
Suður
♠ D106
♥ G103
♦ ÁK643
♣ 76
Suður spilar 3G.
„Hvað segir þú Mark – var vitlaust hjá mér að svína?“ Hollenska konan Elly Schippers kom að máli við Mark Horton, ritstjóra mótsblaðsins á Madeira, og bar undir hann spil sem hún spilaði í tvímenningnum.
Elly opnaði á 10-12 punkta grandi sem gjafari í suður og makker hennar hækkaði beint í 3G, þrátt fyrir fjórlit í báðum hálitum! Það reyndist vel heppnað þegar vestur valdi að koma út með spaðafjarkann, frekar en lauf.
Já – Elly svínaði fyrir spaðakóng og fór tvo niður. Henni þótti líklegt að spaðafjarkinn væri fjórða hæsta frá ♠K874, „enda spila menn venjulega út fjórða hæsta í lengsta og besta, ekki satt?“
„Vissulega,“ samþykkti Mark, en benti jafnframt á að varla geti verið slæmt að fá tíu slagi í þremur gröndum með þennan lauflit. „Kannski var þetta óþarfa græðgi.“