Hjörtur Magni Jóhannsson
Hjörtur Magni Jóhannsson
Ef valdatillaga biskupanna nær fram ganga þá er hér um að ræða brot á landslögum um trúfrelsi.

Hjörtur Magni Jóhannsson

Sjaldan ef nokkurn tíma hafa biskupsembætti þjóðkirkjunnar notið eins lítillar virðingar eða eins takmarkaðs trúverðugleika og undanfarna mánuði, reyndar í mörg ár. Forsíðufréttir, aftur og aftur, klúður á klúður ofan í biskupabröltinu. Hvað gera biskupar þá? Jú, þeir virðast nú ætla í víking, taka sér meiri völd.

Tveir biskupar þjóðkirkjunnar, þ.e. Agnes Sigurðardóttir biskup og Kristján Björnsson vígslubiskup, hafa sett fyrir kirkjuþing tillögu um eigin völd og áhrif, sem eiga að ná langt út fyrir mörk stofnunarinnar. Mál þetta er að finna á yfirstandandi þingi sem mál 24 undir heitinu „Tillaga að starfsreglum um biskup Íslands“, tillaga sem biskup semur um eigin störf og eftirmanns síns.

Í tillögunni segir: „Biskup Íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar og hjá fríkirkjusöfnuðum er starfa á sama kenningargrunni.“ Sem sagt, að biskup þjóðkirkjunnar hafi „yfirumsjón með kirkjuaga“ og hafi tilsjón hjá og með sjálfstæðum lúterskum fríkirkjum. Enn fremur segir að „tilsjón biskups tekur þá til allra þátta kirkjulegrar starfsemi og starfsfólks“. Hvorki meira né minna. Þetta hljómar sem yfirtaka.

Fríkirkjan í Reykjavík er algerlega sjálfstæð og óháð þjóðkirkjunni og biskupum hennar. Og hún vill ekki vera sett undir neitt biskupsvald.

Vá, gott fólk, hvað merkir þessi farsi? Hvaðan á þetta sjálftekna vald að koma? Er það frá páfanum í Róm?

Erum við hér að fara að sjá tvo kardínála, annan í Skálholti og hinn á Hólum og svo íslenska útgáfu af alráðum páfa hér í Reykjavík?

Ætla biskupar að taka sér aga- og tilsjónarvald yfir fleiri lögaðilum sem eru stofnuninni alveg ótengdir? T.d. yfir íslenskum fjölmiðlum svo að þeir flytji engar neikvæðar fréttir af þjóðkirkjunni? Ætla biskupar að taka sér aga- og tilsjónarvald yfir Siðmennt, Ásatrúarfélaginu, yfir kirkjuþingi og jafnvel Alþingi svo að engar rangar ákvarðanir verði þar teknar varðandi stofnunina?

Mikið hefur fjölgað í frjálsum lúterskum fríkirkjum mörg undanfarin ár og mjög hefur fækkað í þjóðkirkjunni á sama tíma og hugsanlega er þessi fáránleiki einhvers konar fálmkennd varnarviðbrögð við því.

Reyndar hefur mest fjölgað hér á landi þeim sem engu trúfélagi vilja tilheyra og þar er fælandi framgöngu þjóðkirkjustofnunarinnar helst um að kenna.

Ef valdatillaga biskupanna nær fram ganga er hér um að ræða brot á landslögum um trúfrelsi.

Ef við rýnum í samskipti undanfarinna áratuga milli þjóðkirkjustofnunarinnar og Fríkirkjunnar í Reykjavík þá hafa þau verið svo gott sem engin. Þjóðkirkjustofnunin með öll sín forréttindi og milljarða hefur látið sem fríkirkjan sé ekki til þótt hún sé varin af stjórnarskrá Íslands. Undantekning eru umræður á kirkjuþingi árið 2001. Þá vaknaði sú hugmynd innan kirkjuþings að bjóða fríkirkjum að ganga inn í þjóðkirkjuna, það átti að vera freistandi boð og vottur um kristinn kærleika. Það var alls ekki að beiðni fríkirknanna, alls ekki frá okkur komið. Þegar upptökur af umræðum kirkjuþings láku óvart út kom tilgangurinn í ljós.

Tilgangur og markmiðið var að fríkirkjur misstu sérstöðu sína og aðdráttarafl. Fríkirkjufólki eða fríkirkjufyrirkomulaginu var líkt við asna, asna sem stæði utan borgarmúranna þ.e. utan þjóðkirkjunnar en var klyfjaður miklu gulli, þ.e.a.s. trúfélagagjöld vaxandi fríkirkna sem þjóðkirkjan girntist. Tilgangurinn var að lokka asnann inn fyrir borgarmúrinn, ná gullinu af baki hans en senda asnann, þ.e. fríkirkjuhugsjónina, síðan aftur út fyrir borgarmúrinn, þar sem hann ætti helst heima, þ.e. hvergi. Engir af æðstu mönnum þjóðkirkjustofnunarinnar, svo sem biskupar eða guðfræðiprófessorar sem tóku þátt í umræðunum, fundu neitt að þessum líkingum.

Með lævísum hætti var tilgangurinn sá að fríkirkjur misstu sérstöðu sína, aðdráttarafl og fjármuni. Á kirkjuþingi var talað um fríkirkjur af þvílíkri fyrirlitningu og hroka að veruleg skömm er að fyrir þjóðkirkjustofnunina.

Nú þegar þjóð okkar og einkum samfélagið okkar á Reykjanesi hér á suðvesturhorninu stendur frammi fyrir hryllilegri ógn náttúruaflanna, þá væri æskilegt að þau sem telja sig, einkum sjálf, í forsvari á sviði kirkjumála fari að haga sér kristilega, hugsi um eitthvað annað en eigin völd og ásókn í annarra fjármuni. Hverjir þurfa aga og tilsjón?

Höfundur er fríkirkjuprestur.

Höf.: Hjörtur Magni Jóhannsson