Valur náði tveggja stiga forskoti á toppi úrvalsdeildar kvenna í handbolta með 25:17-útisigri á bikarmeisturum ÍBV í Vestmannaeyjum í 10. umferðinni í gærkvöldi. Haukakonur geta jafnað Val að stigum með sigri á nýliðum Aftureldingar í kvöld
Valur náði tveggja stiga forskoti á toppi úrvalsdeildar kvenna í handbolta með 25:17-útisigri á bikarmeisturum ÍBV í Vestmannaeyjum í 10. umferðinni í gærkvöldi. Haukakonur geta jafnað Val að stigum með sigri á nýliðum Aftureldingar í kvöld.
Fram vann 33:22-stórsigur á Stjörnunni, sem er óvænt í botnsætinu. Þá unnu nýliðar ÍR sterkan 22:19-útisigur á KA/Þór á Akureyri og fjarlægðust fallsætin í leiðinni. » 35