Körfuknattleikskonan Anna Soffía Lárusdóttir er gengin til liðs við Hauka og mun hún leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil hið minnsta. Anna sagði upp samningi sínum við Breiðablik á dögunum, en hefur nú fundið sér nýtt félag
Körfuknattleikskonan Anna Soffía Lárusdóttir er gengin til liðs við Hauka og mun hún leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil hið minnsta. Anna sagði upp samningi sínum við Breiðablik á dögunum, en hefur nú fundið sér nýtt félag. Anna Soffía, sem er uppalin hjá Snæfelli í Stykkishólmi, gekk í raðir Breiðabliks árið 2021. Þar skoraði hún 9,5 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur.