Elísabet Gunnarsdóttir
Elísabet Gunnarsdóttir
Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir, sem lét af störfum sem þjálfari kvennaliðs Kristianstad eftir 15 ára starf á dögunum, er byrjuð að fá fyrirspurnir frá öðrum félögum. Á meðal félaga sem hafa haft samband við Elísabetu er Mjällby, sem er …

Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir, sem lét af störfum sem þjálfari kvennaliðs Kristianstad eftir 15 ára starf á dögunum, er byrjuð að fá fyrirspurnir frá öðrum félögum.

Á meðal félaga sem hafa haft samband við Elísabetu er Mjällby, sem er í leit að aðstoðarþjálfara fyrir karlalið félagsins. „Ég fékk símtal frá Mjällby þar sem rætt var um stórt hlutverk hjá karlaliðinu. Þetta var skemmtilegt símtal og mikill heiður. Það er ekki á hverjum degi sem kona fær símtal tengt karlaliði. Ég hefði íhugað þetta á öðrum tímapunkti,“ sagði Elísabet við Kristianstadbladet.