Liverpool Tíu stig voru dregin af enska liðinu Everton í gær.
Liverpool Tíu stig voru dregin af enska liðinu Everton í gær. — AFP/Paul Ellis
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefur tekið ákvörðun um að draga tíu stig af Everton vegna brota félagsins á reglum deildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri. Enska úrvalsdeildin fór fram á að tólf stig yrðu dregin af liðinu en þar sem…

Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefur tekið ákvörðun um að draga tíu stig af Everton vegna brota félagsins á reglum deildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri. Enska úrvalsdeildin fór fram á að tólf stig yrðu dregin af liðinu en þar sem deildin gat ekki tekið þá ákvörðun einhliða kom það í hlut óháðrar nefnd­ar að ákv­arða refsingu Everton. Við frádrátt stiganna fer Everton úr 14. sæti deildarinnar niður í 19. og næstneðsta sæti, sem er fallsæti.