— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnarfjörður tók fagnandi á móti jólahátíðinni og aðventunni þegar jólaþorpið var opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani í gær. Þar stigu m.a. á svið Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Rakel Björk Björnsdóttir, sem er svokölluð jólarödd Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður tók fagnandi á móti jólahátíðinni og aðventunni þegar jólaþorpið var opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani í gær. Þar stigu m.a. á svið Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Rakel Björk Björnsdóttir, sem er svokölluð jólarödd Hafnarfjarðar. Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður, tendruðu ljósin á jólatrénu, sem er einmitt gjöf frá þýska bænum Cuxhaven.