Ítalía Albert Guðmundsson hefur framlengt samning sinn á Ítalíu.
Ítalía Albert Guðmundsson hefur framlengt samning sinn á Ítalíu. — Morgunblaðið/Eyþór
Albert Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan samning við ítalska knattspyrnufélagið Genoa. Nýi samningurinn gildir til sumarsins 2027. Fyrri samningur Alberts átti að renna út sumarið 2026 en Genoa ákvað að launa honum frábæra frammistöðu á tímabilinu með árs framlengingu

Albert Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan samning við ítalska knattspyrnufélagið Genoa. Nýi samningurinn gildir til sumarsins 2027. Fyrri samningur Alberts átti að renna út sumarið 2026 en Genoa ákvað að launa honum frábæra frammistöðu á tímabilinu með árs framlengingu. Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að nýi samningurinn feli í sér launahækkun en að Albert sé enn undir smásjá stærri félaga.