Jakob Frímann Magnússon
Jakob Frímann Magnússon
Staða landbúnaðarins er verulegt áhyggjuefni. Hún hefur oft verið erfið en nú virðist steininn hafa tekið úr. Jakob Frímann Magnússon alþingismaður vakti athygli á þessu á þingi í vikunni. Hann minnti á gæði íslenskra landbúnaðarafurða og benti á að á viðsjárverðum tímum skipti fæðuöryggið miklu.

Þá sagði hann: „En nú ber svo við að ég var að koma úr einu blómlegasta landbúnaðarhéraði landsins við Eyjafjörð, Eyjafjarðarsveit. Þar er ástandið því miður þannig eins og aðstæðum er háttað í íslenskum landbúnaði í dag að þar er verið að skella í lás á fleiri en einum stað og fleiri en tveimur. Það er mikið áhyggjuefni ef blómlegasta landbúnaðarhérað Íslands er að leggjast af.

Við vitum að verð á áburði hefur hækkað um 90% bara á undanförnum tveimur árum, fóðrið hefur hækkað um þriðjung og svo er auðvitað það sem allir búa við, þessar vaxtahækkanir, þær bitna gríðarlega á sérstaklega bændum sem hafa verið neyddir til þess af erlendum tilskipunum að byggja ný fjós, nýtt umhverfi.

Þeir kvarta sömuleiðis undan því að við höfum engan landbúnaðarráðherra lengur, að við höfum engan ráðherra í héraði hér. Þessu þarf að breyta, gott fólk. Þetta er kerfislægur vandi og sá flokkur sem stóð vörð um bændur til skamms tíma virðist hafa sofnað á vaktinni. Við skulum halda fæðuörygginu í lagi og tryggja kjör bænda sem veita okkur bestu matvæli í heimi.“