Hermenn Úkraínu við æfingar.
Hermenn Úkraínu við æfingar.
Úkraínumenn virðast nú vera með nokkuð góða fótfestu við austurbakka Dníprófljótsins í Kerson-héraði. Var í gær barist þar á minnst fjórum stöðum og hafa átökin þeim megin fljótsins harðnað hratt á skömmum tíma

Úkraínumenn virðast nú vera með nokkuð góða fótfestu við austurbakka Dníprófljótsins í Kerson-héraði. Var í gær barist þar á minnst fjórum stöðum og hafa átökin þeim megin fljótsins harðnað hratt á skömmum tíma. Vestrænir hernaðarsérfræðingar segja tíðindi þessi afar mikilvæg. Sókn Úkraínuhers hefur það takmark að skera á landleiðina að Krímskaga og vera Úkraínuhers austan megin fljótsins er liður í þeirri aðgerð. Næstu vikur gætu sett mark sitt á gang stríðsins.