“Þegar fólk hringir í 112 af vettvangi slysa er mikilvægt fyrir okkur sem erum á vaktinni að fá sem allra bestar lýsingar á staðháttum, aðkomu að slysinu og ástandi fólks. Allt viðbragð og aðgerðir miðast við þær upplýsingar,” segir Guðbjörg Helga Jónsdóttir, varðstjóri hjá Neyðarlínunni

“Þegar fólk hringir í 112 af vettvangi slysa er mikilvægt fyrir okkur sem erum á vaktinni að fá sem allra bestar lýsingar á staðháttum, aðkomu að slysinu og ástandi fólks. Allt viðbragð og aðgerðir miðast við þær upplýsingar,” segir Guðbjörg Helga Jónsdóttir, varðstjóri hjá Neyðarlínunni. Á sautján ára ferli sínum þar hefur hún tekið á móti miklum fjölda símtala frá vettvangi slysa. Í þeim aðstæðum segir hún fumleysi allra sem að málum koma vera afar mikilvægt.

“Þau sem tilkynna um slys sum alveg pollróleg en önnur í miklu uppnámi. Fyrsta verkefni okkar neyðarvarða í slíkum aðstæðum og símtölum er gjarnan að róa fólk og koma einhverju jafnvægi á hlutina. Þegar upplýsingar liggja fyrir er kallað eftir aðstoð, en misjafnt er hve lengi viðbragðsliðar eru á vettvang. Við biðjum því fólk á staðnum um að veita fyrstu hjálp þangað til og leiðbeinum oft í gegnum símann,” segir Guðbjörg Helga.

“Nýr möguleiki er sá nú getum við sent tengingu í síma viðkomandi sem aftur getur þannig miðlað myndum til okkar. Með því er hægt er að átta sig betur á aðstæðum, greina ástand og veita hjálp samkvæmt því. Myndefnið geta svo viðbragðsliðar á leið á vettvang séð og geta þá verið betur undirbúin þegar á slysstaðinn kemur. Í raun eru þau sem hringja alltaf augu og eyru neyðarvarða áður en bjargir berast.”

Oft hefur verið lýst áhyggjum af því þegar vegfarendur aka fram hjá slysum án þess að aðhafast nokkuð, en hafa svo kannski samband nokkra stund eftir að frá er komið. Guðbjörg segir að í slíkum aðstæðum biðji neyðarverðir viðkomandi stundum um að snúa við til að geta gefið upplýsingar. Einnig að gefa upp nákvæma staðsetningu, enda þótt síminn gefi slíkt yfirleitt sjálfkrafa upp. “Skyndihjálparkunnátta er mikilvæg, eitthvað sem allir ættu að taka og sú kunnátta getur klárlega bjargað lífi” segir Guðbjörg Helga sem hefur mikla reynslu sem leiðbeinandi á því sviði.