— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 300 manns mættu í gær í matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands í Iðufelli í Reykjavík. Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður samtakanna segir…

Um 300 manns mættu í gær í matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands í Iðufelli í Reykjavík. Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður samtakanna segir í samtali við Morgunblaðið að þeim fjölgi sem sæki sér mataraðstoð hjá þeim og að fólk örvænti vegna efnahagsástandsins.

„Það mættu 300 heimili og sem betur fer þá fór fólk heim með allt að 4-5 poka, klyfjað af mat, þannig að það var ánægjulegt. En fjöldinn var gríðarlegur,“ segir hún.

Ásgerður segir ljóst að fleira fólk muni sækjast eftir mataraðstoð fyrir jólin í ár en árin á undan.

„Við munum ekki geta hjálpað öllum. Við getum ekki hjálpað 3.000 heimilum, það kemur ekki til greina,“ segir hún og bætir við að það verði byrjað að skrá niður hverjir fái matarúthlutun um jólin í byrjun desember.