Hannes H. Gissurarson bendir á að 315 starfsmenn Háskólans hafi skrifað yfirlýsingu „gegn ísraelskri nýlendustefnu og þjóðarmorði“. Ekki sé þar minnst á villimannslega árás Hamas-liða á Ísrael 7. október sl. þar sem þeir myrtu alla óbreytta borgara sem fyrir urðu, brenndu börn lifandi og nauðguðu konum á almannafæri. Þessum ódæðum var fagnað ákaft í Gasa. Hannes bendir á brenglaða hugtakanotkun í fyrrnefndri yfirlýsingu og ruglanda, m.a. um nýlendustefnu. Saga Gyðinga í Ísrael er allt önnur. Þetta eru þeirra fornu heimkynni. Innflutningur þeirra hafi aukist upp úr 1882 vegna Gyðingaofsókna í Rússlandi og víðar.
Gyðingar keyptu sér þar jarðnæði og voru orðnir þriðjungur íbúa í landinu um 1940. SÞ lögðu til að landinu yrði skipt milli þeirra og Araba. Ísraelsmenn samþykktu það, en Arabaríkin höfnuðu og hófu stríð gegn Ísrael, en biðu herfilegan ósigur og varð Ísrael talsvert stærra en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta getur ekki talist nýlendustefna.
Hugtakið þjóðarmorð er notað um skipulagða útrýmingu fólks fyrir þá sök eina, hvað það er, og er skýrasta dæmið helför Gyðinga. Nasistar ákváðu beinlínis að útrýma Gyðingum. Engin slík herferð hefur verið rekin gegn Palestínumönnum, og hefur þeim raunar fjölgað úr tveimur í fimm milljónir árin 1990 til 2022.