Katrín Lillý Sveinsdóttir er áhugasöm um gömul og góð húsráð en segir óþarfa að fylgja þeim öllum fyrir jólin.
Katrín Lillý Sveinsdóttir er áhugasöm um gömul og góð húsráð en segir óþarfa að fylgja þeim öllum fyrir jólin. — Mrorgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ég er ein af þeim sem þrífa jafnt og þétt yfir árið. Ég er alveg hætt að taka svona alþrif fyrir jólin en ég vanda mig líklega aðeins meira,“ segir Katrín þegar hún er spurð hvernig hún þrífi fyrir hátíðarnar

Ég er ein af þeim sem þrífa jafnt og þétt yfir árið. Ég er alveg hætt að taka svona alþrif fyrir jólin en ég vanda mig líklega aðeins meira,“ segir Katrín þegar hún er spurð hvernig hún þrífi fyrir hátíðarnar.

„Ég held að fólk skiptist alveg í tvo hópa með þrif fyrir jólin. Yngra fólkið okkar er ekki eins stressað og eldri kynslóðin var að hafa allt hreint og tíu sortir af smákökum í boxum uppi í skáp. Mér finnst þessi þróun mjög góð og vona að fólk reyni frekar að njóta jólanna en að stressast upp út af smá ryki. Jólin koma þó að maður sé ekki búinn að skrúbba og bóna alla íbúðina.“

Skiptir máli að skipuleggja þrif fyrir jólin?

„Já, ég held að það sé mjög gott. Sérstaklega ef þú ætlar í alþrif. Annars ættu þrifin ekki að vera neitt mál. Bara fá alla á heimilinu til að hjálpast að!“

Ef það ætti að sleppa einhverju fyrir jólin, hvað væri það?

„Að láta stressið ná tökum á sér. Bara njóta tímans.“

Einföld og góð ráð

Það fægja margir silfur fyrir jólin og kann Katrín gott húsráð til að einfalda verkið. „Flestum finnst leiðinlegt að pússa silfur. Ein leið er að setja álpappír í botninn á potti, síðan skal hálffylla hann af köldu vatni og setja matarsóda út í. Þá er silfrið sem á að þrífa sett í pottinn og suðan látin koma upp. Eftir smástund er silfrið orðið silfurlitt aftur.“

Katrín nefnir annað gott húsráð sem er nútímalegra. „Svo er eitt sem er mjög gott. Ef leirtauið kemur alltaf blautt úr uppþvottavélinni, prófið þá að setja viskastykki yfir hurðina þegar vélin er búin og loka vélinni aftur. Viskastykkið dregur í sig rakann og leirtauið verður þurrt.“

Nýtur þess að vera í jólafríi

Hvað kemur þér í jólaskap?

„Ljúf og þægileg jólalög og þegar jólaljósin eru komin upp um allan bæ.“

Hvað ætlar þú að gera um jólin?

„Ég ætla að njóta þess að vera í fríi frá vinnu og hitta fjölskylduna. Einnig finnst mér alveg ómetanlegt að komast á jólahlaðborð á aðventunni,“ segir Katrín.

Fjölskyldusmákökurnar

  • 1½ dl síróp
  • 225 g púðursykur
  • 100 g smjörlíki
  • 1 dl rjómi
  • 2 tsk kanill
  • 1 tsk negull
  • 1 tsk engifer
  • 2 tsk matarsódi
  • 500-600 g hveiti

Síróp, púðursykur og smjörlíki er brætt saman við vægan hita og svo kælt. Rjóma og kryddi er svo blandað í. Síðan er hveiti og matarsóda blandað saman við. Geymt í kæli yfir nótt. Kökurnar eru svo bakaðar við 200°. Ég bræði súkkulaði, hvítt eða dökkt, og dýfi svo kökunum í, en það var settur glassúr á þær hérna áður fyrr. Bakið í átta til tíu mínútur eftir stærð.

Höf.: Guðrún Selma Sigurjónsdóttir |