— Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Gunnar Sverrisson ljósmyndari og Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður unnu að bókinni Myndlist á heimilum í samstarfi við Olgu Lilju Ólafsdóttur og Sigurð Atla Sigurðsson hjá Y gallery. Í bókinni er að finna yfir 450 listaverk sem eru á 21 heimili á Íslandi

Gunnar Sverrisson ljósmyndari og Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður unnu að bókinni Myndlist á heimilum í samstarfi við Olgu Lilju Ólafsdóttur og Sigurð Atla Sigurðsson hjá Y gallery. Í bókinni er að finna yfir 450 listaverk sem eru á 21 heimili á Íslandi. Bókin er í sama stíl og fyrri heimilisbækur Höllu Báru og Gunnars en bækurnar hafa hitt hönnunarþyrsta í hjartastað. Fyrri bækur hafa byggst á hugmyndinni um heimilið og þeirri persónulegu sköpun sem þar fer fram þegar fólk býr sér til umgjörð utan um sig og sína.

Í þessari bók er sjónum beint að heimilinu og myndlistinni og hversu sterk áhrif hún hefur í því að segja sögu fólksins sem þar býr. Í bókinni má finna heimili sem hingað til hafa ekki verið í umfjöllun fjölmiðla og hefur ekki verið flaggað.